|
|
|
/bigger>/bigger>/fontfamily>Snorrastofa annast tónlistarviðburði í kirkjunni og sýningar í Safnaðarsal./bigger>/bigger>/fontfamily>
Sjá sérstakar síður um sýningar, bókasafn og rannsóknir.
/bigger>/bigger>/fontfamily>
|
|
Viðburðir 2010 |
 |
|
Hallveig ehf. í Reykholti
Sýning í gömlu Reykholtskirkju á einleik um Hallveigu Ormsdóttur seinni konu og uppáhaldsfrillu Snorra Sturlusonar.
Laugardagur 11. september kl. 17:00
Laugardagur 18. september kl. 17:00
Laugardagur 25. september kl. 17:00
Á Fosshóteli er boðið upp á veitingar fyrir leikhúsgesti.
|
 |
Leikurinn fjallar um ævi Hallveigar Ormsdóttur sem var seinni kona Snorra Sturlusonar og bjó með honum í Reykholti þar til hún lést rétt rúmlega fertug að aldri. Það er leikkonan Margrét Ákadóttir sem fer með hlutverk Hallveigar, en leikinn skrifaði Hlín Agnarsdóttir í samvinnu við Margréti. Leikstjóri er Inga Bjarnason. Búning og gervi hannaði Fitore Berisha. Aðstoðarmaður leikstjóra á æfingum var Guðrún Magnúsdóttir og Guðrún Þórðardóttir sá um saumaskap á búning og höfuðbúnaði. Ljósmyndun Ingi Þ. Bjarnason.
Ekki eru til miklar heimildir um Hallveigu Ormsdóttur en hún var dóttir Orms Jónssonar Loftssonar í Odda á Rangárvöllum og fyrri maður hennar var Björn Þorvaldsson Gissurarsonar í Hruna. Talið er að Hallveig hafi fæðst um aldamótin 1200 og látist í Reykholti á Jakobsmessu þann 25. júlí 1241. Fáar heimildir eru til um ævi Hallveigar og hjónaband hennar og Snorra en þó er vitað að hún var honum mikill harmdauði. Snorri var veginn tæpum þremur mánuðum eftir dauða hennar.
Í nýlegri ævisögu um Snorra Sturluson eftir Óskar Guðmundsson er að finna þær heimildir sem einleikurinn byggir á. Hallveig Ormsdóttir var vel lesin og menntuð kona komin af evrópskum höfðingja- og konungsættum. Þegar leikurinn hefst er hún stödd í Reykholtskirkju 810 ára gömul og hefur stolist til að lesa það sem sagt er um hana og Snorra í nýjustu ævisögunni um skáldið, lögspekinginn og kvennamanninn Snorra. |
|
|

|
Heilög Cecilia
Í forkirkju er samsýning Páls á Húsafelli og Thors Vilhjálmssonar, sem ber heitið Heilög Cecilía.
Páll sýnir svellþrykksmyndir, sem allar eru af Heilagri Ceciliu, verndardýrlingi tónlistarinnar. Thor Vilhjálmsson er höfundur texta. Heimildir greina frá því að Cecilía hafi verið nafndýrlingur Húsafellskirkju í kaþólskum sið. Hún er talin hafa dáið píslarvættisdauða í Róm á 3. öld. Verkin voru áður sýnd í forkirkju Hallgrímskirkju í Reykjavík haustið 2008.
|
|

|
Fornar gáttir
Sýning um fornleifarannsóknir undanfarinna ára í Reykholti var opnuð 28. júní 2008 í Finnsstofu, inn af safnaðarsal Reykholtskirkju.
Meira

|
| |
|